Friday, March 20, 2009

San Miguel og fleira

Jæja ég er svo sannarlega ekki að standa við gefin loforð og skrifa aðeins reglulegar...

Fyrir tveimur helgum eða 13-16 mars fór ég ásamt Antti meðleigjanda mínum til San Miguel Allende að heimsækja Andreu vinkonu okkar sem á heima þar. Hún var í Guadalajara fyrir jól og flutti svo aftur heim til sín eftir jól. En allavega San Miguel er lítill bær með um 130.000 íbúa... svona næstum því Reykjavík :)
Þar er endalaust mikið af galleríum, listasöfnum, kaffihúsum, veitingastöðum og af verkstæðum fyrir listamenn. Þar afleiðandi er heilmikið lista líf þarna og ég veit ekki hvað við heimsóttum mörg gallerí og skemmtilegar búðir yfir helgina... hvert öðru og hver annarri skemmtilegri. Ég held að allir sem fæðist í þessum bæ verði sjálfkrafa listamenn, það er bara ekki annað hægt í svona skapandi umhverfi... ég var næstum því farin að mála þarna bara til að vera með :)

Utan við að fara í gallerí og skoða hús, þá fórum við í grillveislu heima hjá Andreu og hittum foreldra hennar og systkini. Við gistum reyndar hjá henni um helgina svo já við hittum þau meira en bara þarna :) En þetta var ekta Mexíkósk grillveisla, endalaust góður matur og þau ekkert smá vinaleg. Húsið þeirra er líka súper mexíkóskt með kúptum þökum og öllum regnboganslitum. Hálf ósmekklegt á köflum en svo skemmtilega glaðlegt :) held að ég gæti alveg hugsað mér að eiga hús í framtíðinni sem er eilítil blanda af mínum stíl og mexíkóskum....

Við reyndar vorum að leita okkur af húsi alla helgina og fundum nokkur sem komu til greina... kröfurnar sem við gerðum voru garður, fyrir grillveilsur og sundlaug, þak sem var hægt að fara út á og sitja þar á kvöldin og njóta margarítu og stórt baðherbergi :) Við fundum ekkert sem uppfyllti allar kröfurnar, reyndar fórum við bara inní eitt hin vorum meira skoðuð utanfrá :) Já og garðurinn á að vera fullur af ávaxta trjám og bleikum blómum.
Í augnablikinu eru blómin og litirnir á trjánum svo fallegir, tréin eru mörg hver blá sem stendur og mjög mikið af bleikum, rauðum, gulum blómum allsstaðar, bara yndisslegt að rölta um borgina.

Við stefndum á að fara í útileigu í San Miguel, en þar sem það er allt svo skuggalega þurrt núna að við máttum skiljanlega ekki kveikja eld neinsstaðar... svo við enduðum á að fara heim til vinkonu hennar Andreu sem býr á sveitabæ eða nánast herragarð rétt fyrir utan San Miguel.... þar var allt til alls, eldstæði, tennisvöllur, skógur svo við gátum kveikt bálið okkar og grillað pulsur og sykurpúða... :) Ægilega kósý

Rétt fyrir utan borgina eru heitar laugar og við fórum þangað á mánudaeginum áður en við lögðum í sex tíma rútuferðina heim. Þetta var helling af litlum sundlaugum og heitum pottum... náðum að slaka við á þar og sóla okkur örlítið.... sem er mjög gott þar sem brúnkan okkar er að fara....


HUmm man ekki hvort það er mikið meira að segja frá þessari helgi nema að ég fari að fara útí mjög nákvæmar lýsingar og hinum og þessum sýningum og mat sem við borðuðum... en ég efast um að nokkur nenni að lesa það svo að já ef þið viljið smáatriði þá fer ég alveg að koma heim :)

Það var kvalræði að byrja aftur í skólanum eftir þriggja daga helgi... ég er alveg búin að fá nóg af þessu í bili nenni ekki legnur að vakna á hverjum degi og fara í leiðinlega málfræðitíma hjá kennara sem hreinlega gefur ekker upp um hvort að okkur sé eitthvað að fara fram eða ekki... eða hvort að við stöndum okkur vel eða ekki... Hún er eiginlega bara hálf leiðinleg aumingja konan, mjög vinalega og allt en bara svo einhæf og breyta út af planinu er bar eitthvað sem er ekki til í hennar orðaforða. Ég nenni ekki heldur að standa í verkefna skilum í hverri viku svona tveim til þrem í hverri viku og próf á þriggja til fjögurra vikna fresti.... Eða að passa að ég mæti í hvern einasta tíma svo maður fái nú ekki of mikið af skrópum og verður felldur á önninni fyrir það... held að það falli fleiri á því heldur en á prófum. Ég og hinir skiptinemarnir hérna við hreinlega skiljum ekki hvernig í ósköpunum mikið af krökkunum hér gengur illa í þessum skóla, námsefnið er svo matað ofan í okkur að maður lærir allt sem maður á að læra án þess að hafa nokkuð fyrir því... verkefnaskil og ritgerðir hér eru eiginlega bara hálfgert djók líka svona ef maður myndi láta sér detta í hug að fara niður í standarta skólans, ég er viss um að 95% nemandanna hér yrði sparkað út í öðrum háskólum fyrir ritstuld... einhvern veginn hefur gleymst að láta þau vita að þegar þú skrifar heimilda ritgerð þá setur maður heimild í sviga eftir nánast hverri einni og einustu setningu..... en nóg um skólann í bili :)

Núna um helgina setti ég held ég met í partýstandi og fór út á föstudag, laugardag og brunch á sunnudag. Á föstudaginn fórum við Antti og hittum nokkra nýja vini og fórum á svo skemmtilegan bar sem er hérna rétt hjá mér og spjölluðum og prófuðum fullt af nýjum dykkjum.... þar sem bjór kostar 25 pesóa (220-250kr) og kokteilar 23 pesóa sem er auðvitað miklu betra :) og já þetta var bara svoldið gaman...

Laugardags kvöldið var mun afslappaðara og við hittumst bara heima hjá nokkrum vinum og fórum bara snemma heim... Á sunnudaginn bauð Leth okkur í Brunch heima hjá sér klukkan þrjú seinnipartinn... hann er frá Laos og eldaði þesslenskan mat handa okkur sem var svo óendanlega góður ... ég er búin að panta mér matreiðslunámskeið hjá honum :) Við eyddum notalegum seinnipart þarna í góðra vina hópi og sötruðum freyðivín og borðuðm endalaust mikið nammmm
Allir áttu að koma með eitthvað í brunch og ég var dæmd til að baka súkkulaðiköku... en þar sem ég á ekkert til að bara köku, eins ot til dæmis þeytara... þá var skotist í búðin splæst í Herseys delight frá henni Betty.... hent í ofninn og dadarada kaka.... ég held að ég hafi ekki oft fengið eins mikið hrós fyrir nokkra köku sem ég hef gert svo að ég held að ég haldi mig bar avið hana Betty hér eftir :) Ég átti erfitt með að halda pókerfeisinu þegar ég tók við öllum hrósunum fyrir þessa snilldar köku :)

Og já eins og venjulega eftir helgi þá er ég bara dauðuppgefni í dag og nenni engu svo ég og Antti ætlum bara að skella okkur í bíó, það er kvikmyndahátíð í gangi í bænum :)

Svo verið þið bara sæl í bili,
Heyrumst já vonandi fyrr en síðar
Ástý bakarameistari

5 comments:

Anonymous said...

Hæ Hæ bráðum komum við pabbi í allar verlistingarnar Takk fyrir bloggið..hafðuþað gott ,Sjúmst von bráðar..

Erna said...

Umm, en yndislegt að fara í svona grillveislu, verð svöng við tilhugsunina :) og kaka í desert, verður alltaf betra.

Tvíbbaknús

Hildur í HR said...

Ahh ég væri nú til í smá skammt af svona kæruleysislífi.... kokteilar og svona :)

En því miður eru prófin í HR að byrja í næstu viku þannig að það er lítið annað í boði en að sitja sveittur yfir skruddunum!

Haltu áfram að hafa það gott í sólinni og ég vona að heimsóknin frá foreldrum þínum heppnist vel :)

kv. Hildur í HR

Guðrún Edda said...

Líst vel á kröfurnar um húsið hjá ykkur væri til í eitt svoleiðis!

Góða skemmtun svo það sem eftir er og góða skemmtun sömuleiðis með mömmu þinni og pabba.

Hljómar allt svo vel hjá þér að ég væri alveg til í að vera á leiðinni í smá heimsókn.

Kærar kveðjur frá DK

Ásthildur said...

Allir velkomnir hvenæar sem þið vijið :)
splæsi í kokteila og grill....
sjáumst